Samherji kaupir línuveiðiskip frá Noregi

Carisma Star er 52 metra langt og 11 metra breitt …
Carisma Star er 52 metra langt og 11 metra breitt línuveiðiskip.

Nú í vikunni gekk Samherji frá kaupum á Carisma Star, 52 metra löngu og 11 metra breiðu línuveiðiskipi. Carisma Star var áður í eigu Carisma Star AS í Måløy, Noregi og var smíðað í Noregi árið 2001. Það fór í gagngera yfirhalningu árið 2008 þar sem vinnsludekkið var meðal annars endurbyggt og vistarverur endurbættar.

Skipið er mjög vel með farið, samkvæmt upplýsingum frá Samherja og vel útbúið til línuveiða, en skipið er með brunn í miðju skipinu, fremst í vélarrúmi þar sem línan er dregin í gegnum, en fá skip í heiminum eru þannig útbúin.

Samherji hyggst gera skipið út á bolfisk á Íslandi á næstu mánuðum og mun skipið landa ferskum afla til vinnslu í landvinnslunum á Dalvík og Akureyri. Skipið er vel útbúið til vinnslu um borð, bæði fyrir flökun og heilfrystingu.

Skipið er komið úr sinni síðustu veiðiferð í Noregi og landar á mánudaginn og fer síðan í slipp og verður í framhaldi af því afhent nýjum eigendum.

Kaupverð er ekki gefið upp. 

Séð í brú skipsins.
Séð í brú skipsins.
Séð inn í messa skipsins.
Séð inn í messa skipsins.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK