Mesti vöxtur sjávarklasans er í líftækni og fullvinnslu

Hægt er að framleiða fjölmargar vörur úr aukaafurðum sjávarafurða, og …
Hægt er að framleiða fjölmargar vörur úr aukaafurðum sjávarafurða, og má sjá nokkur dæmi um það á myndinni sem tekin var í Sjávarklasanum. Lýsi er eflaust þekktasta dæmið. mbl.is/Golli

Mesti vöxtur í sjávarútvegi og tengdum greinum er í fullvinnslu aukaafurða og líftækni, samkvæmt athugun Íslenska sjávarklasans.

Á Íslandi eru yfir 30 fyrirtæki sem sérhæfa sig í líftækni eða annarri fullvinnslu aukaafurða úr hafinu. Samanlögð velta þessara fyrirtækja á árinu 2012 var um 22 milljarðar og jókst hún um 17% frá fyrra ári.

„Ef vöxtur þessara greina heldur áfram eins og verið hefur undanfarin misseri má gera ráð fyrir að velta í fullvinnslu aukaafurða og líftækni nálgist óðfluga grunnatvinnuveginn sjálfan á næstu 15 til 20 árum,“ segir í greiningunni, sem um er fjallað í fréttskýringu í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK