Stálskip selur kvóta og skip

Þór HF-4 verður seldur til Rússlands.
Þór HF-4 verður seldur til Rússlands. mbl.is/Eggert

Útgerðarfélagið Stálskip hefur ákveðið að selja allan kvóta, auk þess sem skip þess verður selt til Rússlands. Framvegis mun fyrirtækið einbeita sér að fjárfestingum í fasteignum og rekstri innanlands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stálskipum, en félagið hefur undanfarin ár greitt hæstu meðallaun á landinu.

Stálskip var stofnað 1970 af hjónunum Guðrúnu Lárusdóttur og Ágústi Sigurðssyni. Við það munu hjónin láta af þeim störfum sem áður fylgdu erilsamri útgerð en Guðrún mun eftir sem áður leiða fyrirtækið inn í nýja tíma í samræmi við breytt hlutverk þess.

Veiðiheimildir til Síldarvinnslunnar, Gjögurs og ÚA

Í tilkynningunni segir að Guðrún og Ágúst, sem eru komin á níræðisaldur, hafi verið vakin og sofin yfir rekstrinum alla tíð en hafi undanfarin misseri leitað leiða til að draga úr erli og álagi og varð eina færa niðurstaðan sú, eftir samningaumleitan síðustu mánaða, að selja Þór HF 4 til Rússlands og veiðiheimildir í íslenskri lögsögu til Síldarvinnslunnar og Gjögurs og úthafsheimildir til Útgerðarfélags Akureyringa.

Stálskip er skuldlaust félag sem hefur keypt yfirgnæfandi hluta veiðiheimilda og hefur vegna fjárhagslegs styrks getað greitt hærra verð fyrir veiðiheimildir en önnur félög. Í tilkynningunni segir að þessi staðreynd hafi mikil áhrif á að ekki hefur reynst mögulegt að selja veiðiheimildir með skipinu. Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki, sem flest eru skuldsett, verða að bæta við veiðiheimildum á þau skip sem þegar eru gerð út til að auka hagræðingu svo hægt sé að standa undir kaupum á veiðiheimildum, kostnaði vegna veiðigjalda og annarra útgjaldaliða.

Skrifstofa Stálskips mun eftir sem áður verða starfrækt í Hafnarfirði og munu stöðugildi verða fjögur. Stjórn Stálskips verður óbreytt og Guðrún mun áfram starfa sem framkvæmdastjóri og lítur hún nýtt hlutverk félagsins björtum augum enda mun félagið eiga trygga framtíð með þessum hætti, segir í tilkynningunni.

Guðrún Lárusdóttir og eiginmaður hennar, Ágúst Sigurðsson, hafa stýrt Stálskipum …
Guðrún Lárusdóttir og eiginmaður hennar, Ágúst Sigurðsson, hafa stýrt Stálskipum undanfarna áratugi. Ómar Óskarsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka