Kínverska tæknifyrirtækið Lenovo hefur keypt Motorola frá Google og er það að sögn liður í að styrkja hlutdeild fyrirtækisins á farsímamarkaði.
Kaupverðið var 2,9 milljarðar Bandaríkjadala og mun Motorola verða dótturfyrirtæki Lenovo. Höfuðstöðvar Motorola verða áfram í Chicago en ætlunin er að ráða 3.500 nýja starfsmenn í tengslum við starfsemina, þar af 2.800 í Bandaríkjunum.
Stjórnarformaður Lenovo, Yang Yuanqing, sagði í yfirlýsingu í dag að kaupin væru sögulegur áfangi fyrir félögin tvö sem núna væru tilbúin fyrir samkeppni, vöxt og sigur á snjallsímamarkaðnum.
Hann sagði Motorola henta Lenovo fullkomlega þar sem vörumerkið væri sterkt á Bandaríkjamarkaði, með traust tengsl við fjarskiptafyrirtæki og byggi yfir hæfileikaríku starfsfólki.