Fullkomlega óraunhæf skattlagning

Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður sitastjórnar Glitnis.
Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður sitastjórnar Glitnis. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Formaður slitastjórnar Glitnis segir 35 prósent skattlagningu á greiðslur yfir landamæri úr slita­bú­um föllnu bankanna vera fullkomlega óraunhæfa hugmynd.

Í umfjöllun um málið í Morgunblaðinu í dag var greint frá því að í fyrirliggjandi tillögum framkvæmdastjórnar stjórnvalda um afnám hafta að útgöngugjaldið svokallaða verði 35 prósent. Samkvæmt þessu gætu slitabúin þurft að greiða samtals yfir fimm hundruð milljarða króna í sérstakan skatt til ríkisins vilji þau undanþágu frá fjármagnshöftum til að inna af hendi greiðslur úr landi til kröfuhafa. Bók­fært virði eigna slita­búa Kaupþings, Glitn­is og gamla Lands­bank­ans (LBI) nam tæp­lega 2.600 millj­örðum króna um mitt þetta ár og eiga er­lend­ir aðilar eiga 94% allra krafna á hend­ur bú­un­um.

Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, segist hafa orðið vör við umræðu um ýmsar tölur án þess að málið hafi þó sérstaklega verið rætt við fyrirsvarsmenn búanna. Hún sagðist þó aldrei hafa heyrt neitt í líkingu við þetta og segir slíka skattlagningu fullkomlega óraunhæfa, standi á annað borð vilji til þess að leysa málin. Vildi hún þó ekki tjá sig um málið að öðru leyti á þessu stigi.

Dýrkeyptur forgangur

Í umfjöllun Morgunblaðsins segir að fari slita­bú­in fram á að fá samþykkt­ar und­anþágu­beiðnir frá höft­um til greiðslu gjald­eyr­is til kröfu­hafa, líkt og áformað er í til­lög­um þeirra að nauðasamn­ingi, er talið eðli­legt að þau greiði fyr­ir slík­an for­gang í formi skatt­lagn­ing­ar.

For­sæt­is- og fjár­málaráðherra hafa ít­rekað að mik­il­vægt sé að tryggja jafn­ræði við los­un hafta. Útgöngu­gjaldið er því yf­ir­lýs­ing af hálfu ís­lenskra stjórn­valda um að mögu­leg­ar greiðslur úr slita­bú­un­um yfir landa­mæri verði meðhöndlaðar með sama hætti og gild­ir um aðra ís­lenska lögaðila. Skipt­ir þá engu máli hvort greiðslurn­ar eru fram­kvæmd­ar í krón­um eða gjald­eyri enda eigi kröfu­haf­ar aðeins kröf­ur í krón­um á ís­lensk slita­bú. 

Greiði gjald fyrir forgang

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er lagt til 35% útgöngugjald fyrir slitabú …
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er lagt til 35% útgöngugjald fyrir slitabú föllnu bankanna.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK