Rannsókn Vinnumálastofnunar á flugfélaginu Primera Air hefur verið felld niður og ekkert verður aðhafst gegn félaginu að svo stöddu. Ástæðan er sú að flugfélagið fellur ekki undir gildissvið laga um útsenda starfsmenn og starfsmannaleigur þar sem félagið er ekki með flugrekstrarleyfi á Íslandi.
Þetta segir Unnur Sverrisdóttir, aðstoðarforstjóri Vinnumálastofnunar. Hún segir að Vinnumálastofnun hafi safnað saman gögnum og átt fund með forsvarsmönnum Primera en að málið hafi hins vegar ekki gengið upp þar sem flugreksturinn er í öðru landi. Hún segir málið hafa verið flókið viðureignar og því hafi rannsóknin tekið nokkurn tíma. Stjórnendum Primera hefur verið tilkynnt um lok rannsóknarinnar.
Málið var tekið upp eftir að Alþýðusamband Íslands afhenti Vinnumálastofnun gögn sem sýndu fram á brot þeirra gagnvart starfsfólki og hvatti stjórnvöld til þess að taka starfsemi flugfélagsins hér á landi til rækilegrar skoðunar og stöðva starfsemi þeirra.
Mbl hafði áður greint frá því að íslenskum starfsmönnum flugfélagsins var sagt upp störfum en grískar flugfreyjur á vegum starfsmannaleigu á Guernsey voru ráðnar sem verktakar í staðinn. „Þær eru á lægri launum og þetta er bara félagslegt undirboð,“ sagði Kristinn Örn Jóhannesson, trúnaðarmaður VR hjá Primera Air, á sínum tíma.
ASÍ sagði ráðningarsamninga Primera sýna að félagið væri bæði að brjóta lög og grundvallarréttindi á starfsfólkinu.
Í ágúst stofnaði hið íslenska flugfélag Primera Air nýtt félag í Lettlandi sem ber nafnið Primera Air Nordic. Var þá sagt að fjárstýring og eignaumsjón yrði áfram á Íslandi en sölustarfsemi í Danmörku. Síðar sagði Vinnumálastofnun í samtali við mbl að til stæði að flytja alla starfsemina til Lettlands.
ASÍ hefur bent á að samkvæmt lögum um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja með tímabundna starfsmenn á Íslandi, eigi íslensk lög að gilda um réttarstöðu áhafnarinnar. Um lágmarkslaun og lágmarkskjör eigi samkvæmt því að fara eftir íslenskum kjarasamningum og íslenskum lögum.
Frétt mbl.is: Geirneglir starfsemi Primera
Frétt mbl.is: Vilja að starfsemi Primera verði stöðvuð
Frétt mbl.is: Skipt út fyrir ódýrara vinnuafl