Tæknirisinn Google ákvað að verðlauna manninn sem keypti lénið Google.com á dögunum og átti það í eina mínútu. Verðlaunin eru rúmlega tíu þúsund dollarar, eða 1,2 milljónir króna. Eftir að maðurinn sagðist ætla gefa það til góðgerðarmála ákvað Google að tvöfalda upphæðina.
Líkt og mbl greindi frá á dögunum var af einhverjum ástæðum hægt að kaupa lénið Google.com um daginn. Fyrrverandi starfsmaður fyrirtækisins, Sanmay Ved, rakst á það á netvafri og var fljótur að ganga frá kaupum. Kaupverðið fyrir fjölsóttustu síðu heims var ekki hátt, eða 12 dollarar, sem jafngildir 2.300 íslenskum krónum.
Eignarhaldið entist þó ekki lengi þar sem kaupin voru afturkölluð eftir um eina mínútu með skilaboðum um að annar aðili væri þegar skráður eigandi. Ved fékk endurgreitt og hann áframsendi trúnaðarupplýsingar, sem hann hafði fengið sendar sem eigandi Google, á öryggisteymi fyrirtækisins.
Frétt mbl.is: Átti Google.com í eina mínútu
Google verðlaunar reglulega þá sem finna einhverjar kerfisvillur hjá fyrirtækinu og á heimasíðu þeirra má meira að segja finna undirsíðu með tilgreindum verðlaunafjárhæðum.
Í samtali við Business Insider segir Ved að málið hafi hins vegar aldrei snúist um peninga og að hann vilji setja öðrum gott fordæmi.
Ved ætlar að gefa verðlaunin til góðgerðarsamtakanna The Art of Living India sem sjá um að styrkja fátæk börn til menntunar. Ved vill ekki gefa upp nákvæma verðlaunafjárhæð en segir hana þó hafa verið yfir tíu þúsund dollurum.
Eftir að Google frétti að Ved ætlaði að gefa peningana ákvað fyrirtækið síðan að tvöfalda upphæðina