Twitter er að segja upp 8% af starfsmönnum fyrirtækisins, alls 336 manns. Um er að ræða endurskipulagningu rekstrar, segir í tilkynningu til kauphallarinnar.
Rekstur Twitter gengur brösuglega og hefur Jack Dorsey, stofnandi fyrirtækisins, snúið aftur í stól forstjóra þess.
Fjallað var um mögulegar uppsagnir Twitter í síðustu viku en stór hluti starfsmanna fyrirtækisins eru verkfræðingar.
Uppsagnir framundan hjá Twitter