Fjórðungsfjölgun ferðamanna í janúar

Ferðamönnum til Íslands fjölgaði um fjórðung í janúar miðað við …
Ferðamönnum til Íslands fjölgaði um fjórðung í janúar miðað við sama tímabil í fyrra. mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Ekkert lát er á fjölgun ferðamanna hingað til lands og var fjölgun þeirra um 23,6% í janúar miðað við sama tíma í fyrra. Voru ferðamenn sem komu í gegnum Leifsstöð 77.500 talsins, eða 14.800 fleiri en í janúar í fyrra. Meira en fjórfalt fleiri ferðamenn komu í janúarmánuði 2016 en í janúar árið 2010. Þetta kemur fram í tölum Ferðamálastofu.

Bretar og Bandaríkjamenn 54% ferðamanna

Um 78% ferðamanna í janúar árið 2016 voru af tíu þjóðernum. Bretar voru fjölmennastir eða 35,5% af heildarfjölda en næstir komu Bandaríkjamenn (18,6%). Þar á eftir fylgdu Kínverjar (4,3%), Þjóðverjar (4,2%), Frakkar (3,2%), Danir (2,7%), Norðmenn (2,5%), Japanir (2,3%), Svíar (2,2%) og Kanadamenn (2,0%).

Mesta fjölgunin á sér stað meðal Breta og Bandaríkjamanna, en 5.835 fleiri Bretar komu í janúar miðað við sama mánuð í fyrra og bandarískir ferðamenn voru 5.051 fleiri. Kínverskum ferðamönnum fjölgaði þá um 1.173 milli ára. Þessar þrjár þjóðir báru uppi aukninguna í janúar milli ára eða 81,5% af heildaraukningu.

Ferðamönnum fækkaði hins vegar frá nokkrum þjóðum, m.a. Svíþjóð, Danmörku, Frakklandi og Japan.

Fjöldi Breta og Bandaríkjamanna sexfaldast frá 2010

Þegar litið er til fjölda ferðamanna í janúarmánuði má sjá verulega fjölgun frá árinu 2010. Þannig hefur fjöldi ferðamanna frá Bretlandi og Norður Ameríku meira en sexfaldast, fjöldi ferðamanna frá Mið- og S-Evrópu nærri þrefaldast og ferðamönnum frá löndum sem lenda í hópnum annað meira en fjórfaldast. Ferðamönnum frá Norðurlöndunum hefur hins vegar fjölgað í minna mæli.

Um 30 þúsund Íslendingar fóru utan í janúar síðastliðnum eða 2.700 fleiri en árið 2015. Um er að ræða 11,1% fleiri brottfarir en í janúar 2015.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK