Setja spurningarmerki við lögmæti búvörusamninganna

Samtök verslunar og þjónustu segja í umsögn sinni um frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum, búnaðarlögum og tollalögum að samtökin dragi í efa að gerð samninganna standist stjórnarskrá.

Gagnrýna samtökin frumvarpið og samningana og hvernig stefnt sé að því að keyra málið í gegnum Alþingi. „Samkvæmt þessum samningum hefur íslenska ríkið skuldbundið sig að reiða af hendi um 130–140 milljarða íslenskra króna á tíu ára tímabili til viðbótar við 9 milljarða króna árlegan stuðning sem innlendur landbúnaður nýtur óbeint í formi tollverndar á innfluttar landbúnaðarvörur. Telja samtökin að sú framkvæmd gangi gegn stjórnarskránni sem og fjárlögum, fjáraukalögum og lögum um opinber fjármál og samræmist ekki almennt viðurkenndum sjónarmiðum um fjárstjórnarvald Alþingis og þrískiptingu ríkisvaldsins,“ segir í tilkynningu frá samtökunum.

Samtökin leggja til að greint verði með skýrum hætti á milli hefðbundins landbúnaðar (sauðfjár- og nautgriparæktar) og iðnaðarframleiðslu (alifugla- og svínaræktar), „enda ber síðarnefnda starfsemin með sér að um sé að ræða almenna iðnaðarframleiðslu sem á lítið skylt við hefðbundinn landbúnað.“

Þá gera samtökin einnig athugasemdir við úthlutun á tollkvótum á innfluttum landbúnaðarvörum og sér í lagi skyldu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til að leggja útboðsgjöld á kvóta. Telja þau að sú breyting muni óneitanlega leiða til hækkunar á innlendu verði á þessum vörum. 

Í umsögninni leggja samtökin til breytingar á núverandi fyrirkomulagi þar sem byggt verði á blandaðri leið hlutkestis og sögulegs innflutnings á þessum vörum. Sú tillaga grundvallist á frumvarpsdrögum sem unnin hafa verið og send voru inn með umsögninni.

Samtökin gagnrýna einnig að tollur á tilteknar innfluttar vörur verði leiðréttur einhliða án frekari skoðunar á öðrum tollnúmerum sem sömu sjónarmið gilda um. „Því leggja SVÞ til að stigið verði skref í átt að auknu frjálsræði og samkeppni í framleiðslu og innflutningi á alifugla- og svínakjöti og með því að lækka tolla á þessum afurðum um helming,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK