Tóku tilboðum fyrir 72 milljarða

Gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands minnkar um rúmlega 47 milljarða króna í kjölfar útboðs bankans á gjaldeyri fyrir aflandskrónur sem auglýst var í lok maí. Útboðið, sem er liður í losun fjármagnshafta í samræmi við áætlun stjórnvalda, fór fram 16. júní en ákveðið var að taka tilboðum á genginu 190 krónur á hverja evru eða lægra.

„Með fyrirvara um endanlegt uppgjör bárust alls 1.646 tilboð og var 1.619 tilboðum tekið. Fjárhæð samþykktra tilboða nam rúmlega 72 ma.kr. af tæplega 178 ma.kr. sem boðnar voru í útboðinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Seðlabankanum. Bankinn hafi í kjölfarið ákveðið að bjóðast til að kaupa á útboðsgenginu 190 krónur á hverja evru aflandskrónaeignir sem ekki voru seldar í útboðinu. Óskir um viðskipti þurfa að hafa borist bankanum í gegnum milligönguaðila fyrir klukkan 10:00 mánudaginn 27. júní.

„Slík viðskipti gætu aukið kaup Seðlabanka Íslands á aflandskrónaeignum umfram það sem hér er tilkynnt um,“ segir enn fremur en nánari upplýsingar um fyrirkomulag og skilmála þessara viðskipta verði birtar á morgun. „Endanlegar tölur um niðurstöðu gjaldeyrisútboðsins 16. júní síðastliðinn að teknu tilliti til viðskipta sem til kann að stofnast á grundvelli fyrrgreindrar ákvörðunar verða birtar að afloknu uppgjöri viðskipta 29. júní 2016. Uppgjör viðskipta á grundvelli tilboðs Seðlabanka Íslands sem getið er um hér að framan fer fram sama dag.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK