Tölvuleikjafyrirtækið Plain Vanilla tilkynnti í dag að skrifstofum þess á Íslandi yrði lokað og starfsfólki sagt upp. Þar með lýkur sögu þessa fyrirtækis hér á landi, en þegar mest var voru starfsmenn 86 talsins. Á starfstíma þess var fjárfest fyrir um fimm milljarða í fyrirtækinu, en aðallega var um að ræða erlenda fjárfesta með fjárfestingarsjóðinn Sequoia Capital í broddi fylkingar.
Árið 2013 fjallaði Kjarninn um að annað tölvuleikjafyrirtæki, Zynga að nafni, hefði tvisvar gert yfirtökutilboð í Plain Vanilla. Fyrst var lagt fram tilboð upp á 100 milljónir dala, sem þá voru um 12 milljarðar íslenskra króna, en seinna tilboðið var nokkuð hærra.
Forsvarsmenn Plain Vanilla vildu ekkert tjá sig um tilboðið á sínum tíma en töluðu um að mikill áhugi hefði verið á félaginu.
Plain Vanilla gaf út tölvuleikinn QuizUp, sem var spurningaleikur fyrir snjalltæki, og varð hann meðal vinsælustu leikja hjá notendum Apple- og Android-tækja eftir útgáfuna. Seinna hóf fyrirtækið samstarf við bandarísku sjónvarpsstöðina NBC um framleiðslu á spurningaþáttum sem byggðu á QuizUp-leiknum og áttu að vera gagnvirkir að einhverju leyti.
Þegar tilkynnt var að ekkert yrði úr sjónvarpsþáttunum tóku stjórnendur Plain Vanilla ákvörðun um að loka fyrirtækinu hér á landi.