Þorsteinn í Plain Vanilla stofnar nýtt fyrirtæki

Þorsteinn B. Friðriksson hefur nú stofnaði fyrirtækið Teatime ehf.
Þorsteinn B. Friðriksson hefur nú stofnaði fyrirtækið Teatime ehf. mbl.is/Rax

Þorsteinn B. Friðriksson, stofnandi Plain Vanilla, hefur stofnað nýtt fyrirtæki, Teatime ehf., og er tilgangur félagsins m.a. hugbúnaðarþróun og hugbúnaðargerð. Í samtali við mbl.is segir Þorsteinn að fyrirtækið muni starfa í tækniiðnaðinum en við hvað nákvæmlega mun koma betur í ljós seinna.

„Eftir að við seldum QuizUp um áramótin höfum við nokkrir kjarnastjórnendur í Plain Vanilla verið að skoða ýmis tækifæri á  þessum markaði. Við vorum ótrúlega heppin með hvað við fengum mikla reynslu í gegnum Quizup,“ segir Þorsteinn en samkvæmt auglýsingu sem birtist í Lögbirtingablaðinu fyrr í mánuðinum er Ýmir Örn Finnbogason, sem var fjármálstjóri Plain Vanilla, í varastjórn Teatime ehf.

Plain Vanilla þróaði og gaf út  spurningaleikinn QuizUp sem sló í gegn þegar hann var gefinn út í nóvember árið 2013. Leikurinn var síðan seldur til bandaríska leikjafyrirtækisins Glu Mobile í lok desember á síðasta ári. Þá hafði starfsemi Plain Vanilla hér á landi verið hætt eftir að hætt var við sýn­ingu sjón­varps­út­gáfu leiks­ins í sam­starfi við NBC sjón­varps­stöðina, en með því brást rekstr­ar­grund­völl­ur fyr­ir­tæk­is­ins á Íslandi. Öllum 36 starfsmönnum fyrirtækisins hér á landi var sagt upp í kjölfarið. 

Þorsteinn segir að nýja fyrirtækið muni starfa í tæknigeiranum, rétt eins og Plain Vanilla. „Við erum að vinna að nýjum hlutum og spennandi tækifærum. En það kemur betur í ljós seinna hvað við erum að bralla.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK