Greiða 2.200 milljónir fyrir ljós- og fjar­skipta­hluta 365

Áfram er ráðgert að ganga frá kaupunum um mitt ár …
Áfram er ráðgert að ganga frá kaupunum um mitt ár 2017, að fengnu samþykki viðkomandi eftirlits- og hagsmunaaðila.

Samkomulag hefur náðst um kaup Fjarskipta á eignum og rekstri ljósvakamiðla og fjarskiptaþjónustu 365 miðla. Aðilar hafa náð nýju samkomulagi um kaupverð á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga úr fyrrgreindri áreiðanleikakönnun og áframhald einkaviðræðna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjarskiptum.

Þar segir að það sé mat aðila að hagnaður Fjarskipta fyrir afskriftir og fjármagnsliði af ljósvaka- og fjarskiptastarfsemi 365 miðla, að viðbættum samlegðaráhrifum, geti numið u.þ.b. 1.600 milljónum króna á ársgrundvelli auk annarra jákvæðra áhrifa á frjálst sjóðsflæði Fjarskipta.

Fyrri frétt mbl.is: Kaupa ljós- og fjarskiptahluta 365

Greiða 500 milljónir með reiðufé

Kaupverð miðað við framangreint verður 2.200 milljónir króna sem verða greiddar annars vegar með 32.380.952 hlutum í Fjarskiptum á genginu 52,50 krónur á hlut, og hins vegar 500 milljónum króna með reiðufé. Einnig yfirtaka Fjarskipti vaxtaberandi skuldir að fjárhæð 4,6 milljörðum króna. Kaupin eru enn háð skilyrðum og forsendum sem útfærð verða nánar í kaupsamningi aðila.

„Ofangreint samkomulag um breytt kaupverð greiðir fyrir kaupsamningsgerð, sem stefnt er að því að ljúki á fyrstu vikum nýs árs. Áfram er því ráðgert að ganga frá kaupunum um mitt ár 2017, að fengnu samþykki viðkomandi eftirlits- og hagsmunaaðila. Nánar verður gert grein fyrir forsendum viðskiptanna þegar kaupsamningur liggur fyrir,“ segir í tilkynningu Fjarskipta.

Gerðu ráð fyrir allt að 3,4 milljörðum í ágúst

Þegar að viðræður um kaupin voru tilkynnt 31. ágúst kom fram að for­send­ur um kaup­verð væru grund­vallaðar á upp­lýs­ing­um selj­anda og þeim for­send­um að rekstr­ar­hagnaður hins keypta fyr­ir fjár­magnsliði, skatta og af­skrift­ir, að viðbætt­um sam­legðaráhrif­um, geti numið allt að 2 millj­örðum króna á árs­grund­velli.

Þá kom fram að kaupverð væri allt að 3,4 milljarðar króna en eins og fyrr segir er kaupverðið 2,2 milljarðar króna, sem er 1,2 milljörðum minna. Þá var upphaflega gert ráð fyrir því að greiddir yrðu 1,7 milljarðar króna í reiðufé en eins og fram kemur í tilkynningunni í dag eru það 500 milljónir. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK