75,3% fjölgun ferðamanna í janúar

Ferðamenn við spegilslétta Reykjavíkurtjörn.
Ferðamenn við spegilslétta Reykjavíkurtjörn. mbl.is/Golli

Tæplega 136 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í janúar síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 58.400 fleiri en í janúar á síðasta ári. Aukningin nemur 75,3% milli ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni.

Aldrei hefur mælst jafnmikil aukning í janúar milli ára frá því Ferðamálastofa hóf talningar á Keflavíkurflugvelli. til samanburðar fjölgaði ferðamönnum um 40,1% milli áranna 2013 og 2014 og önnur ár frá árinu 2012 hefur fjölgunin í janúar verið á bilinu 23,6% til 34,5%.

Bretar og Bandaríkjamenn voru um helmingur ferðamanna en Bretar voru 28,2% og Bandaríkjamenn 22,8% af heildarfjölda. Tíu þjóðerni sem röðuðust þar á eftir voru eftirfarandi:

  • Kínverjar 5,4%
  • Þjóðverjar 4,4%
  • Frakkar 3,3%
  • Kanadamenn 3,1%
  • Japanar 2,4%
  • Hollendingar 2,2%
  • Svíar 1,9%
  • Pólverjar 1,9%
  • Spánverjar 1,8%
  • Danir 1,5%

Bandaríkjamönnum fjölgaði langmest milli ára í janúar eða um 16.581 og voru þeir ríflega tvöfalt fleiri í ár en í fyrra. Bretum fjölgaði um 10.836 í janúar sem er 39,4% aukning frá því í fyrra, Kínverjum fjölgaði um 3.956 sem er meira en tvöföldun frá því í fyrra, Þjóðverjum um 2.734, sem er 83,7% aukning, og Kanadamönnum um 2.630 sem er nærri þreföldun frá því í fyrra. Þessar fimm þjóðir báru uppi 62,9% af aukningu ferðamanna milli ára í janúar.

Hlutfallsleg samsetning ferðamanna hefur breyst nokkuð frá árinu 2013. Hlutfall Norðurlandabúa hefur minnkað mikið og farið úr 16% árið 2013 niður í 5,3% í ár. Hlutdeild N-Ameríkana var hins vegar 25,9% í janúar síðastliðnum og hefur hún hækkað jafnt og þétt frá árinu 2013 þegar hún var rúmlega 16%.

Bretland hefur verið hlutfallslega stærsta markaðssvæðið. Hlutdeild þess hefur verið ríflega þriðjungur síðustu ár en lækkar nú lítillega. Hlutdeild Mið- og S-Evrópubúa hefur verið á líku róli á tímabilinu 2013 til 2017 og hlutdeild þeirra sem falla undir annað hefur vaxið á síðasta ári.

Um 37 þúsund Íslendingar fóru utan í janúar eða 7.255 fleiri en í janúar árið 2016. Um er að ræða 24,2% fleiri brottfarir en árið 2016.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK