Stjórnandi Samsung handtekinn

Lee Jae-Yong.
Lee Jae-Yong. AFP

Varaformaður stjórnar Samsung, Lee Jae-Yong, var handtekinn í dag grunaður um mútur og fleiri brot í fjársvikamáli tengdu spillingu í stjórnmálum Suður-Kóreu. Þrátt fyrir að vera ekki titlaður forstjóri Samsung stýrir Lee Jae-Yong Samsung en faðir hans er stjórnarformaður samsteypunnar.

Þing Suður-Kór­eu samþykkti í des­em­ber að kæra for­seta lands­ins, Park Geun-Hye, í tengsl­um við málið og fer for­sæt­is­ráðherra lands­ins, Hwang Kyo-Ahn, með embætt­is­störf henn­ar á meðan rann­sókn stend­ur yfir.

Choi Soon-Sil, upp­nefnd „Ras­pútín Kór­eu“, sem var trúnaðar­vin­kona for­set­ans, Park Geun-Hye, er sökuð um að hafa not­fært sér sam­band þeirra til að knýja fram fjár­fram­lög að and­virði sjö millj­arða króna frá fyr­ir­tæk­jum, m.a. Sam­sung, til stofn­un­ar sem hún stjórn­ar.

Meðal þess sem Lee Jae-Yong er sakaður um er að hafa greitt Choi Soon-Sil tæplega 40 milljónir Bandaríkjadala í mútur til þess að tryggja sér pólitíska greiða.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK