Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað félagið Fjárfar ehf. gjaldþrota en tollstjóri krafðist þess í maí að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Um hálfgert huldufélag er að ræða en það skilaði síðast ársreikningi árið 2012 og átti þá um 25 milljónir króna. Starfsemi félagsins virðist hins vegar hafa verið lítil sem engin á þeim tíma.
Í Lögbirtingablaðinu fyrr í mánuðinum kom fram að Fjárfar hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta 7. júlí síðastliðinn. Skiptafundur fer fram miðvikudaginn 27. september.
Í gegnum tíðina hefur enginn viljað kannast við að eiga félagið eða hafa stjórnað því. Skráðir stjórnarmenn sóru félagið af sér og sögðust ekkert hafa skipt sér af því. Það var þó ítrekað tengt við Baug, en Jóhannes Jónsson, kenndur við Bónus, var skráður stjórnarmaður í félaginu.
Félagið stóð á árunum 1999 til 2003 í margvíslegum fjárfestingum og tók meðal annars þátt í harðvítugri baráttu um völd í Straumi og Íslandsbanka.