Rio Tinto Alcan, sem er einn stærsti álframleiðandi í heimi, ætlar að endurskoða eignarhald sitt á álverinu í Straumsvík. Rannveig Rist, forstjóri fyrirtækisins, greindi frá þessu á starfsmannafundi í dag. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar tvö.
Undirbúningur fyrir sölu getur tekið allt að tvö ár og mögulegt söluverð er ekki gefið upp. Engar uppsagnir starfsmanna eru fyrirhugaðar. Þetta kom jafnframt fram í fréttatímanum.
Á fáeinum árum hefur starfsmönnum Rio Tinto í Straumsvík verið fækkað um 100, í 380, eða um það bil um 20%. Á undanförnum árum hefur álverð þótt lágt, gengi krónu hefur styrkst og fyrirtækið þarf að greiða hærra raforkuverð en áður til Landsvirkjunar. Á sama tíma hafa Kínverjar aukið mjög álframleiðslu sína. Þetta kom fram í ítarlegu viðtali við Rannveigu Rist í ViðskiptaMogganum í maí.