Gengi hlutabréfa Icelandair Group hafa hækkað um 10% frá opnun markaða í morgun í kjölfar þess að félagið hækkaði afkomuspá sína fyrir árið í gærkvöldi.
Velta með hlutabréf félagsins klukkan 10 nam rúmlega 240 milljónum króna og gengið stóð í 16,50 en við lokun markaða í gær stóð gengið í 15.
Uppgjör Icelandair Group fyrir þriðja ársfjórðung verður birt á fimmtudaginn næstkomandi.
Frétt mbl.is Útlit fyrir betri afkomu Icelandair
Samkvæmt drögum að árshlutareikningi Icelandair Group fyrir þriðja ársfjórðung 2017 er EBITDA félagsins, rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, í fjórðungnum hærri en gert var ráð fyrir í afkomuspá ársins sem birt var 27. júlí og hljóðaði upp á 150-160 milljónir Bandaríkjadala.
Jafnframt hafa afkomuhorfur fyrir fjórða ársfjórðung styrkst. Icelandair gerir nú ráð fyrir því að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nemi 165-175 milljónum Bandaríkjadala, 17,5 til 18,5 milljörðum króna, í ár.
Frétt mbl.is Horfurnar bestar á Íslandi