Bresk eftirlitsyfirvöld gagnrýna verklag endurskoðunarrisans KPMG harðlega og segja að gæði endurskoðana fyrirtækisins hafi „versnað óásættanlega“.
Fréttavefur breska ríkisútvarpsins BBC greinir frá gæðaúttekt eftirlitsstofnunarinnar Financial Reporting Council (FRC) á stærstu endurskoðunarfyrirtækum Bretlands. FRC fann að hjá öllum fyrirtækjunum en KPMG var tekið sérstaklega fyrir vegna lélegra gæða.
„Gæðin hjá einu fyrirtæki, KPMG, hafa versnað óásættanlega,“ segir í tilkynningu frá eftirlitsstofnuninni. „50% endurskoðana KPMG á FTSE 350-fyrirtækjum var ábótavant samanborið við 35% árið á undan.“
Forstöðumaður FRC segir að öll stóru endurskoðunarfyrirtækin verði að taka sér tak, sérstaklega hvað varðar endurskoðanir á bönkum.
KPMG í Bretlandi hefur gefið út að fyrirtækið sé „vonsvikið“ með niðurstöðu úttektarinnar og að tekin verði skref til að auka gæða endurskoðana þess.
Fjögur stærstu endurskoðunarfyrirtæki Bretlands — KPMG, Deloitte, EY og PwC — hafa verið í sviðsljósinu síðustu mánuði eftir röð stórfelldra mistaka. Má nefna gjaldþrot breska verktakafyrirtækisins Carillion í því samhengi en KMPG er nú til rannsóknar vegna málsins.
Greint var frá því í maí að fjögur stærstu endurskoðunarfyrirtækin hefðu látið útbúa viðbragðsáætlun við mögulegri uppskiptingu fyrirtækjanna í Bretlandi sem stjórnmálamenn og eftirlitsstofnanir hafa talað fyrir.