Bréf Icelandair hrynja í verði

Tap Icelandair er verulegt.
Tap Icelandair er verulegt. mbl.is/Árni Sæberg

Hlutabréfaverð í Icelandair Group féll um 9,48% strax við opnun markaðar í Kauphöll Íslands í morgun. Verð á hvert bréf nemur nú 8,4 kr. en við lokun markaðar í gær nam gengið 9,28 krónum á hvert bréf.

Lækkunina má rekja til uppgjörs Icelandair í gær þar sem fram kom að tap félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins nam 89,4 milljónum Bandaríkjadala, eða um 11 milljörðum króna.

Tap félagsins vegna Max-þotanna sem hafa verið kyrrsettar frá því í mars nam 50 milljónum Bandaríkjadala, um 6,1 milljarði króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK