Bandaríski rafbílaframleiðandinn Tesla opnaði starfsstöð sína á Krókhálsi núna fyrr í morgun. Í fréttatilkynningu frá Tesla segir að nú geti viðskiptavinir fyrirtækisins loksins notið öruggrar þjónustu. Hægt verður að panta tíma í gegnum app rafbílaframleiðandans.
Þá segir í tilkynningunni að fljótlega muni Íslendingar geta prufukeyrt nýja Tesla-rafbíla. Þá geta þeir farið inn á hönnunarsíðu Tesla og sérpantað bíla af gerðinni Model S, Model X eða Model 3.
Grunnverð á Tesla Model 3 verður um 5,1 milljón króna með virðisaukaskatti og sendingarkostnaði.