Skiptastjóri þrotabús Hjá Jóa Fel-brauð/kökulist ehf., sem var í eigu Jóhannesar Felixssonar bakarameistara og hélt utan um rekstur Jóa Fel bakaría og kaffihúsa, hefur boðað til skiptafundar 4. desember hjá þrotabúinu. Kemur þetta fram í auglýsingu í Lögbirtingablaðinu í dag, en þar er gjaldþrotið tilkynnt formlega.
Er meðal annars skorað á alla sem telja sig eiga kröfu í búið að lýsa þeim.
mbl.is hafði áður greint frá því að Bakarameistarinn hefði keypt reksturinn úr þrotabúinu og til stæði að opna aftur útibúin við Holtagarða og Spöngina, undir merkjum Bakarameistarans.