S&P reikn­ar með efnahagsbata á næsta ári

Þótt orðið hafi verulegt högg í ferðaþjónustu gerir matsfyrirtækið ráð …
Þótt orðið hafi verulegt högg í ferðaþjónustu gerir matsfyrirtækið ráð fyrir að afgangur verði á viðskiptajöfnuði næstu árin. mbl.is/Kristinn Magnússon

Alþjóðlega mats­fyr­ir­tækið S&P Global Rat­ings hef­ur staðfest A/​A-1 láns­hæfis­ein­kunn­ir rík­is­sjóðs Íslands með stöðugum horf­um. Greint er frá þessu á vef Stjórn­ar­ráðsins.

S&P reiknar með efnahagsbata á næsta ári eftir 7,8% samdrátt hagkerfisins í ár. Þótt orðið hafi verulegt högg í ferðaþjónustu gerir matsfyrirtækið ráð fyrir að afgangur verði á viðskiptajöfnuði næstu árin.

Þrátt fyrir verulegan stuðning opinberra fjármála við hagkerfið gegn áhrifum faraldursins gerir matsfyrirtækið ráð fyrir að stjórnvöldum takist að rétta af opinber fjármál eftir 2021. Í því samhengi lítur matsfyrirtækið til árangurs í þeim efnum síðasta áratug en sterk ytri staða veitir hagkerfinu frekari viðnámsþrótt.

Fram kemur í fréttatilkynningu S&P að lánshæfismat ríkissjóðs gæti hækkað ef efnahagsbatinn frá heimsfaraldrinum verður umfram væntingar og leiðir til aukinnar fjölbreytni í íslensku efnahagslífi og útflutningi sem draga myndi úr sveiflum í viðskiptakjörum. Við slíkar aðstæður gæti orðið hraðari viðsnúningur í ríkisfjármálum.

Þá gæti lánshæfismat ríkissjóðs lækkað ef heimsfaraldurinn veldur varanlegra tjóni á framleiðslugetu hagkerfisins en gert er ráð fyrir og ef það hefði í för með sér verulega hækkun opinberra skulda sem hlutfall af landsframleiðslu umfram væntingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK