Nýi framkvæmdastjórinn kaupir fyrir 5,7 milljónir

Magnús hóf störf hjá Högum í dag.
Magnús hóf störf hjá Högum í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Magnús Magnús­son, sem hóf störf sem fram­kvæmda­stjóri stefnu­mót­un­ar og rekstr­ar hjá Hög­um í dag, hefur keypt hlutabréf í félaginu fyrir 5,75 milljónir. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar vegna viðskipta innherja.

Fram kemur í tilkynningunni að Magnús hafi keypt bréfin í gegnum félagið 2M ehf., en um er að ræða 100 þúsund hluti á genginu 57,5 krónur á hlut.

Tilkynnt var um ráðningu Magnúsar í síðustu viku, en hann hefur und­an­far­in ár starfað sem sjálf­stæður ráðgjafi. Áður leiddi hann stefnu­mót­un­art­eymi Mar­els og fyr­ir það starfaði hann sem ráðgjafi hjá alþjóðlega ráðgjafa­rfyr­ir­tæk­inu McKins­ey & Comp­any. 

Magnús er með M.Eng.-gráðu í iðnaðar­verk­fræði og aðgerðagrein­ingu frá UC Berkeley í Kali­forn­íu, og B.Sc.-gráðu í iðnaðar­verk­fræði frá Há­skóla Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK