Tvö börn stungin til bana

Tvö börn, tveggja og fjögurra ára, voru stungin til bana í Svíþjóð í gærkvöldi. Móðir þeirra hlaut alvarlega áverka af völdum hnífsstungu. Hún er 23 ára. Að sögn lögreglu hefur 27 ára karlmaður, sem þekkti fjölskylduna, verið handtekinn, grunaður um verknaðinn.

Sænska ríkissjónvarpið, SVT, sagði atburðinn hafa átt sér stað í húsi í Arboga, sem er um 155 km vestur af Stokkhólmi.

Ekki liggur fyrir hvers vegna voðaverkin voru unnin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert