Obama í heimsókn hjá Bush

Barack Obama og Michelle, kona hans, komu í kvöld í heimsókn til Georges W. Bush og Lauru konu hans í Hvíta húsinu í Washington. 

Obama og Bush tókust í hendur og gengu í framhaldinu inn í skrifstofu forsetans, en þetta var í fyrsta sinn sem Obama kemur inn í skrifstofuna frægu. Búist er við því að þeir muni ræða m.a. Íraksstríðið og fjármálakreppuna.

Þá er einnig búst við því að þeir muni ræða valdaskiptin, en Obama tekur formlega við embættinu 20. janúar nk. Hann hefur þegar gefið til kynna að muni mögulega snúa við umdeildum ákvörðunum Bush.


George og Laura Bush taka á móti Barack og Michelle …
George og Laura Bush taka á móti Barack og Michelle Obama í dag. Reuters
Obama lagði höndina föðurlega á öxl Bush þegar þeir gengu …
Obama lagði höndina föðurlega á öxl Bush þegar þeir gengu inn í Hvíta húsið. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert