Var með höfuð kærustunnar í tösku á barnum

Spænskur maður fór og drakk bjór með vinum sínum á bar eftir að hafa myrt kærustu sína. Maðurinn var með höfuð hennar í poka á barnum.

Eftir að maðurinn hafði klárað bjórinn klifraði hann upp í háspennuvirki og greip um háspennulínu. Hann féll 30 metra niður og lést á sjúkrahúsi stuttu síðar.

Vinir mannsins sögðu í samtali við dagblaðið ABC að hann hefði sagt þeim á barnum að hann hefði myrt kærustu sína. Þeir trúðu honum ekki vegna þess hversu rólegur hann var þrátt fyrir að blóðblettir væru á skyrtu hans.

Eftir að maðurinn hafði yfirgefið barinn sáu gestir sem höfðu verið þar að talsvert mikið blóð á götunni fyrir utan barinn. Þegar þeir uppgötvuðu sér til skelfingar höfuð í poka inn á barnum létu þeir lögregluna vita.

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert