20 létust í námuslysi

Tuttugu námuverkamenn létust og 17 er saknað eftir að gassprenging varð í kolanámu í Henan héraði í Kína. Alls voru 276 verkamann að störfum þegar slysið varð. Er þetta enn einn námuharmleikurinn í Kína.

Björgunarsveitarmenn eru að störfum í borginni Yuzhou þar sem slysið varð, en 239 námuverkamönnum tókst að komast út af sjálfsdáðum. Tuttugu lík hafa fundist og þá er 17 saknað sem fyrr segir.

Kínverskur námuverkamaður.
Kínverskur námuverkamaður. Reuters
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert