Obama: „Egyptaland verður aldrei samt“

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, í ræðustól í Hvíta húsinu í …
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, í ræðustól í Hvíta húsinu í dag. Reuters

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að egypska þjóðin myndi ekki sætta sig við neitt annað en lýðræði og hann hvatti herinn til að tryggja að stjórnarbreytingarnar yrðu trúverðugar.

„Egyptar hafa talað, hlustað hefur verið á raddir þeirra og Egyptaland verður aldrei samt aftur,“ sagði Obama. Þetta er í fyrsta skipti sem hann tjáir sig eftir afsögn Mubaraks.

„Mubarak brást við kröfum Egypta með því að víkja.Egypska þjóðin hefur lagt áherslu á að hún sættir sig ekki við neitt annað en ekta lýðræði.“

Obama varaði við að erfiðir tímar gætu verið framundan í Egyptalandi.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert