Flugher Líbíu óvirkur

Einn af æðstu yfirmönnum breska hersins sagði í dag að vegna loftárása bandalagshersins væri flugher Líbíu  ekki lengur virkur.

Greg Bagwell, marskálkur, sagði við breska fjölmiðla, eftir fund með yfirmönnum breska flughersins í herstöð á Ítalíu þar sem breskar orrustuflugvélar eru með bækistöð, að einnig væri ráðist á landher Líbíustjórnar þegar hann ógnaði óbreyttum borgurum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert