Sprengdu efni á bæ ódæðismannsins

Skemma á bænum sem Anders Behring Breivik leigði og þar …
Skemma á bænum sem Anders Behring Breivik leigði og þar sem hann undirbjó hryðjuverkin. Reuters

Norska lögreglan sprengdi í kvöld sprengiefni sem fundust á bænum sem ódæðismaðurinn Anders Behring Breivik leigði í Hedmark. Talið var tryggara að sprengja efnin á staðnum í stað þess að flytja þau annað og eyða þeim þar.

Fréttavefurinn ABC Nyheter greinir frá þessu.  Lögreglan staðfesti að sprenginin hafi verið í skóginum við sveitabæinn, en hann er í Åsta Øst í sveitarfélaginu Rena. Talsmaður lögreglunnar vissi ekki um hvar né heldur efnin fundust eða hve mikil hætta var talin stafa af þeim.

Um þrjú tonn af tilbúnum áburði fundust á bænum, en hann má nota til að gera sprengiefni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert