Breyttu búð í fangelsi

Byggingar í Baba Amro hverfinu í borginni Homs í Sýrlandi …
Byggingar í Baba Amro hverfinu í borginni Homs í Sýrlandi eru illa farnar, en stjórnarherinn hefur haldið uppi linnulausum árásum þar undanfarnar vikur. Reuters

Enn halda átökin í Sýrlandi áfram, en 35 létust þar í átökum í dag, þar af tíu í Baba Amr hverfinu í borginni Homs. Mannréttindasamtök segja að stjórnarherinn hafi gengið þar hart fram og breytt verslunarmiðstöð í hverfinu í fangelsi.

Tólf létust til viðbótar í Homs, þegar sprengju var varpað að mótmælendum. Það af voru fjögur börn

Öryggissveitir myrtu ungan mann í norðvesturhluta landsins og þrír voru myrtir í sama landshluta, einnig af öryggissveitum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert