„Þeir eru verri en Bandaríkin“

AFP

Breskar leyniþjónustustofnanir hafa stundað það að hlera grunnnetið sem alþjóðleg símtöl og internetnotkun fara um og safnað gríðarlegu magni upplýsinga með þeim hætti. Þetta kemur fram í skjölum sem breska dagblaðið Guardian hefur undir höndum sem fjallar um í dag. Skjölin fékk blaðið frá Edward Snowden, fyrrverandi starfsmanni bandarísku leyniþjónustunnar, sem var í gær ákærður fyrir njósnir af stjórnvöldum í Bandaríkjunum.

Fram kemur í frétt AFP að þýsk stjórnvöld hafi í dag lýst því yfir að breskir ráðamenn verði að bregðast við þessum ásökunum. Haft er eftir Sabine Leutheusser-Schnarrenberger, dómsmálaráðherra Þýskalands, að það væri „stórslys“ ef þær reyndust sannar. Samkvæmt frétt Guardian er um að ræða mikið magn persónulegra upplýsinga eins og færslur á samfélagsvefnum Facebook, tölvupósta, notkunarsögu á internetinu og símtöl. Þessu hafi breskir leyniþjónustumenn síðan deilt með Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna (NSA).

Viðbrögð stjórnvalda í Bretlandi hafa verið á þá leið að öll slík starfsemi breskra leyniþjónustustofnana hafi verið innan ramma laganna. Að öðru leyti hafa ekki borist viðbrögð frá þeim. Haft er eftir Snowden að það séu þannig alls ekki einungis Bandaríkjamenn sem stundi slíkt viðtækt eftirlit heldur Bretar líka. „Þeir eru verri en Bandaríkin,“ er haft eftir honum. Um er að ræða verkefni sem gengur undir nafninu Tempora og unnið hefur verið að undanfarna 18 mánuði. Fram kemur að upplýsingar sem safnað hafi verið í gegnum það hafi meðal annars hjálpað til við að koma í veg fyrir hryðjuverk í tengslum við ólympíuleikana í London á síðasta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert