Nigella frétti af skilnaðinum í fjölmiðlum

Nigella Lawson.
Nigella Lawson. mbl.is

Sjónvarpskokkurinn Nigella Lawson frétti af skilnaðaráformum eiginmannsins í fjölmiðlum. Eiginmaðurinn, Charles Saatchi, birti tilkynningu í Daily Mail um helgina undir yfirskriftinni: „Nigella, ég ætla að skilja við þig.“

Fjórar vikur eru frá því að myndir af Saatchi að taka Nigellu kverkataki birtust í fjölmiðlum. Í tilkynningunni í gær sagði hann ástæðu skilnaðarins þá að hún hefði ekki stutt við bakið á honum eftir að málið komst í hámæli.

Í frétt Telegraph um málið er haft eftir vinum Nigellu að hjónin hafi ekki ræðst við frá því að hún yfirgaf heimili þeirra í kjölfar þess að myndirnar voru birtar.

Þau giftust árið 2003.

Ljósmyndarinn sem tók myndirnar af rifrildi parsins segir að það hafi staðið í um hálftíma. Á einni myndinni má sjá Saatchi taka Nigellu hálstaki og á annarri að stinga fingri upp í nef hennar. Í kjölfarið hafi Nigella farið grátandi af veitingastaðnum þar sem rifrildið átti sér stað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert