Heimsótti dóttur sína í fangelsið

Daniel Wani með dóttur sinni sem kom í heimnn á …
Daniel Wani með dóttur sinni sem kom í heimnn á þriðjudag. Ljósmynd/Sky-sjónvarpsstöðin.

Daniel Wani, eiginmaður Mariam Yahya Ibrahim Is­hag sem dæmd var til dauða fyrir  trú­villu sam­kvæmt ís­lömsk­um sja­ría-lög­um, hefur nú heimsótt nýfædda dóttur þeirra hjóna og eiginkonu sína í fangelsið.

Barnið, sem kom í heiminn á þriðjudag, dvelur í fangelsinu ásamt móður sinni og mun gera það næstu tvö árin, eða þar til hún verður tekin af lífi. Sonur þeirra hjóna dvelur einnig í fangelsinu með móður sinni.

Dóm­inn hlaut Is­hag þegar hún var komin átta mánuði á leið, en hún var jafn­framt dæmd til þess að þola 100 svipu­högg fyr­ir að gift­ast kristn­um manni. Þeirri refs­ingu verður full­nægt eftir tvö ár.

Wani sagði að andleg líðan eiginkonu sinnar virtist vera aðeins betri en áður og ungbarnið væri við góða heilsu. Hann segist vona að dómurinn yfir eiginkonu sinni verði endurskoður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert