Brexit-ferlið af stað fyrir lok mars

Forsætisráðherra Bretlands, Theresa May, segir í viðtali við BBC í dag að útganga Breta úr Evrópusambandinu hefjist fyrir lok marsmánaðar á næsta ári.

Hingað til hefur May aðeins sagt að stjórnvöld myndu ekki virkja 50. grein Lissa­bon-sátt­mál­ans fyrir árslok en samkvæmt greininni hefur ríki tvö ár til þess að ná sam­komu­lagi við leiðtoga Evr­ópu­sam­bands­ins um hvernig skil­mál­um úr­sagn­ar­inn­ar verði háttað.

May segir í viðtali við BBC í morgun að hún muni greina nánar fá þessu í ræðu sem hún flytur á flokksfundi Íhaldsflokksins í Birmingham í dag. 

BBC

Theresa May og eiginmaður hennar Philip John May.
Theresa May og eiginmaður hennar Philip John May. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert