Tíu látnir vegna hópsmits á hjúkrunarheimili

Tíu létust vegna hópsmitsins. Myndin er úr safni.
Tíu létust vegna hópsmitsins. Myndin er úr safni. AFP

Tíu heimilismenn skosks hjúkrunarheimilis eru látnir eftir að kórónuveirusmit komu upp innan heimilisins sem er í bænum Loghgelly. 25 heimilismenn smituðust af kórónuveirunni í hópsmitinu og 43 starfsmenn. 

Hjúkrunarheimilinu var lokað tímabundið fyrir nýjum innlögnum en nú hefur það verið opnað að nýju og eru fjórtán dagar síðan smit greindist þar síðast. Engar upplýsingar hafa fengist um það hvernig smitið komst inn á hjúkrunarheimilið. 

Guardian greinir frá þessu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert