Biden heill á húfi eftir hrakföll

Biden er við fulla heilsu þrátt fyrir að hafa misstigið …
Biden er við fulla heilsu þrátt fyrir að hafa misstigið sig aðeins. AFP

Fulltrúi Hvíta hússins, Karine Jean Pierre, hefur lýst því yfir að Joe Biden Bandaríkjaforseti sé við góða heilsu þrátt fyrir að hafa hrasað þrisvar á leið um borð í flugvél forsetans. Atvikið náðist á myndband og voru fjölmiðlar vestra ekki lengi að gera sér mat úr efninu, enda ekki í fyrsta skipti sem heilsufar forsetans er til umfjöllunar. Segir frá þessu á fréttavef Reuters.

Á myndbandinu sést Biden hrasa þrisvar í tröppunum en ekki er útlit fyrir að honum hafi orðið meint af. „Það var mjög vindasamt á svæðinu en hann er við hestaheilsu,“ sagði Jean-Pierre í samtali við fjölmiðla, sem inntu hana eftir svörum í kjölfar hrakfallanna.

Sjón er sögu ríkari:

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert