Erlendir blaðamenn fylgja Einari og Telmu við hvert fótmál

mbl.is/Ragnheiður Aðalsteinsdóttir

Sendiherra Íslands í Svíþjóð hélt íslensku Eurovision-sveitinni boð í kvöld og sóttu það líka fjöldi blaðamanna frá ýmsum löndum. Söngparið Einar Ágúst Víðisson og Telma Ágústsdóttir hafa vakið mikla athygli í Stokkhólmi og fylgja erlendir fréttamenn þeim eiginlega eftir við hvert fótmál. Á æfingu í Globen-höllinni í dag fluttu þau lag sitt „Tell me" í órafmagnaðri útgáfu og segja heimildamenn Fréttavefs Morgunblaðsins að sá flutningur hafi tekist afar vel. Var myndin tekin við það tækifæri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert