Mikil hækkun á fiskverði á einu ári

Verð á ferskum fiski hefur hækkað mikið frá því í …
Verð á ferskum fiski hefur hækkað mikið frá því í janúar í fyrra. mbl.is/Þorkell

Verð á fersku fiskmeti hefur hækkað mikið frá því í janúar í fyrra, að því er fram kemur í nýrri verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ, sem gerð var í verslunum á höfuðborgarsvæðinu í dag miðvikudaginn 24. janúar. Meðalverð flestra tegunda sem skoðaðar voru hefur hækkað um 10-20%, frá því í könnun verðlagseftirlitsins í janúar 2006, en dæmi eru um ríflega 30% verðhækkun milli ára.

Kannað var verð á 29 tegundum fiskmetis í fiskbúðum og fiskborðum stórmarkaða og reyndist verslun Fiskisögu við Sundlaugaveg oftast með hæsta verðið, eða í 15 tilvikum. Lægsta verðið var oftast að finna í fiskborði Fjarðarkaupa í Hafnarfirði, eða í 8 tilvikum.

ASÍ segir, að mikill verðmunur var á milli verslana á öllum þeim tegundum sem skoðaðar voru. Munur á hæsta og lægsta verði var í flestum tilvikum yfir 40% og á mörgum tegundum reyndist mun meiri verðmunur. Mestur verðmunur í könnuninni var á útvötnuðum saltfiski sem var dýrastur 1590 krónur í verslunum Fiskisögu en ódýrastur 838 krónur í Fjarðarkaupum sem er 752 króna verðmunur eða 90%.

Mikil hækkun frá janúar í fyrra
Ef könnunin nú er borin saman við niðurstöður verðkönnunar verðlagseftirlitsins sem gerð var í janúar í fyrra, kemur í ljós að meðalverð allra tegunda sem skoðaðar voru í báðum könnunum hefur hækkað umtalsvert, að tindabikkju undanskilinni. Meðalverð flestra tegunda hefur hækkað á bilinu 10-20% á milli ára, en einstaka tegundir hafa hækkað enn meira. Mest hækkun hefur orðið á meðalverði á útvötnuðum saltfiski í bitum, 31% milli ára og á heilum slægðum laxi sem hefur hækkað um 24%.

Meðalverð á kílói af roðflettum beinlausum ýsuflökum sem eru vinsæl á borðum landsmanna kostaði 1023 krónur fyrir ári en kostaði nú 1202 krónur sem er 18% hækkun á milli ára.

ASÍ tekur fram að fimm verslanir í könnuninni hafi skipt um eigendur frá því í janúar í fyrra og séu nú reknar af sama aðilanum undir nafninu Fiskisaga. Þessar verslanir voru áður Fiskbúðin Vegamót við Nesveg, Fiskbúðin Hafrún í Skipholti, Fiskbúðin Sundlaugavegi, Sjávargallerý við Háaleitisbraut og Fiskbúðin Vör við Höfðabakka.

Könnunin var gerð í eftirtöldum verslunum: Nóatúni Hringbraut 119, Melabúðinni Hagamel 39, Fiskisögu Nesvegi 100, Fiskbúðinni Freyjugötu 1, Fiskisögu Skipholti 70, Fiskisögu Sundlaugavegi 12, Fiskisögu Háaleitisbraut 58-60, Hagkaupum Skeifunni, Fiskbúðinni Hafberg Gnoðavogi 44, Fiskbúðinni Arnarbakka 4-6, Fiskisögu Höfðabakka, Fiskbúðinni Hófgerði 30, Fiskbúðinni Okkar Smiðjuvegi 8, Fiskbúðinni Lækjargötu 34b Hf, Fiskbúðinni Trönuhrauni 9 Hf, Samkaupum-Úrval Miðvangi 41 Hf, og Fjarðarkaupum Hólshrauni 1B Hf.

Gallerý fiskur við Nethyl heimilaði ekki aðilum frá verðlagseftirlitinu að taka niður verð í verslun sinni að sögn ASÍ.

Vefsíða ASÍ

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert