Erill og ölvun í Eyjum

Veðrið lék við þjóðhátíðargesti í Herjólfsdal í gær, talsverð ölvun …
Veðrið lék við þjóðhátíðargesti í Herjólfsdal í gær, talsverð ölvun hefur verið á svæðinu og töluverður erill hjá lögreglu mbl.is/Sigurgeir

Töluverður erill var hjá lögreglunni í nótt vegna óláta og slagsmála í Herjólfsdal að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu. Lögreglumenn voru í mörgum tilvikum beðnir að aðstoða gæslumenn í Dalnum vegna aðila sem voru þar til vandræða. Í flestum tilvikum tókst að leysa úr ágreiningi án eftirmála. Þrír gistu þó fangageymslu sl. nótt.

Fimm fíkniefnamál komu upp í gærkvöldi og nótt í Eyjum. Í tveimur þessara mála var um að ræða LSD, kannabis og kokaín. Á aðila fundust 14 skammtar af LSD. Grunur leikur á að efnin hafi verið ætluð til sölu. Í tveim tilvikum fundust efni á víðavangi en auk þess var aðili handtekinn þegar hann gleypti fíkniefni er lögreglumenn voru að hafa afskipti af honum. Hann viðurkenndi að hafa gleypt LSD og kókaín. Hann gisti fangageymslu í nótt.

Tvær líkamsárásir hafa verið kærðar. Í hvorugu tilviki er vitað um gerendur en ekki var um mikla áverka að ræða, báðir þessara aðila þurftu þó að leita læknisaðstoðar.

Enn er búist við að fjölgi gestum á Þjóðhátíð þar sem flogið verður stanslaust frá Bakkaflugvelli og Herjólfur fer eina ferð í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert