Bæjarráð Akraness furðar sig á birtingu REI-skýrslu

Í bókun, sem samþykkt var á fundi bæjarráðs Akraness í dag, er lýst furðu á því, að skýrsla stýrihóps um REI–málið svokallaða skuli birt opinberlega í dag áður en allir eignaraðilar hafa fengið hana í hendur og fjallað um hana.  

„Svo virðist sem skýrsluhöfundur telji að málefni REI sé einkamál borgarstjórnar Reykjavíkur, þar sem pólitískir fulltrúar sem þátt tóku í atburðarrásinni geti rannsakað sjálfa sig og komist að sameiginlegri niðurstöðu.  Bæjarráð telur lítið mark takandi á slíkri skýrslu og átelur vinnubrögðin, þar sem sameigendum hefur verið haldið utan við málið á öllum stigum þess.

Ef tilefni þótti til að rannsaka þetta mál átti það að vera að frumkvæði stjórnar Orkuveitunnar og til þess ráðinn óháður aðili.  Slík skýrsla hefði verið trúverðug og getað varpað ljósi á alla málavexti.  Bæjarráð ítrekar jafnframt óskir bæjarstjórnar við svörum við spurningum sem lagðar hafa verið fyrir formann stjórnar og forstjóra Orkuveitunnar," segir í bókuninni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert