7 gistu í fangaklefa

Lögreglan
Lögreglan mbl.is/Júlíus

Nóttin var fremur erilssöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eftir rólegt kvöld og gista sjö fangageymslur lögreglunnar vegna ölvunar og óspekta á almannafæri. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var eitthvað um pústra en engar alvarlegar líkamsárásir. Tveir voru teknir ölvaðir undir stýri og tilkynnt var um fimm árekstra í höfuðborginni frá miðnætti. Engin slys urðu á fólki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert