Flutningabílar í vörslu lögreglu

Lögreglumaður á verði við Kirkjusand.
Lögreglumaður á verði við Kirkjusand. mbl.is/Júlíus

Um 15 flutningabílar eru nú á lokuðu svæði á Kirkjusandi í Reykjavík en um er að ræða bíla, sem lögreglan lagði hald á eftir mótmælaaðgerðir atvinnubílstjóra á Suðurlandsvegi í dag. Verið er að flytja síðasta bílinn á Kirkjusand þar sem lögreglan vaktar svæðið.

Gert var ráð fyrir að Suðurlandsvegur yrði opnaður á ný fyrir umferð nú um klukkan 16 eftir að hafa verið lokaður vegna aðgerða bílstjóra frá því í morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert