Fyrsta skemmtiferðaskipið í ár

Fram siglir inn í Reykjavíkurhöfn í dag.
Fram siglir inn í Reykjavíkurhöfn í dag.

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins, norska skipið Fram, lagðist að Miðbakka í Reykjavíkurhöfn síðdegis. Skipið er sérútbúið fyrir siglingar á norðurslóðum og í hafinu við suðurskautið.

Gert er ráð fyrir komu 84 skemmtiferðaskipa hingað til lands í ár og er áætlað að farþegafjöldinn verði um og yfir 60 þúsund. Fram heldur áfram för á morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert