Telur vinnu ganga vel

Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, kemur til fundar í Ráðherrabústaðnum í …
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, kemur til fundar í Ráðherrabústaðnum í dag. mbl.is/Brynjar Gauti

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, sagði þegar hann kom af fundi í Ráðherrabústaðnum nú um klukkan 15, að unnið væri hörðum höndum að aðgerðaáætlun vegna fjármálakreppunnar  og hann vissi ekki annað en að það gengi prýðilega.

Hann sagðist aðspurður vera sannfærður um að menn kæmu með hluti, sem væru bestir í þeirri stöðu sem uppi er nú. Að öðru leyti vísaði hann á Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sem setið hefur á fundum í Ráðherrabústaðnum frá því klukkan 9 í morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert