Mikið fjallað um ummæli forsetans
Mikið er fjallað um hádegisfund Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, með erlendum stjórnarerindrekum í norrænum fjölmiðlum í dag. Er jafnvel staðhæft í frétt vefjarins Barentsobserver.com að Ólafur Ragnar hafi sagt að reynist Rússar Íslendingum vinir í raun geti þeim staðið til boða að nota flugvöllinn á Keflavíkurflugvelli.
Fram kemur í frétt Dagbladet, sem vísað er til á vefnum, að tilboðið hafi komið öllum í opna skjöldu ekki síst fulltrúum Rússa sem hafi sagt að þeir hefðu í raun ekki þörf fyrir afnot af flugvellinum. Tekið er fram að forseti Íslands hafi ekkert ákvörðunarvald varðandi utanríkismál þjóðarinnar.
Ólafur Ragnar er sagður hafa gagnrýnt Dani, Svía og Breta harkalega á fundi með erlendum stjórnarerindrekum í síðustu viku en m.a. er greint frá fundinum á vef danska blaðsins Politiken í dag.
Haft er eftir forsetanum að þessar þjóðir hafa snúið baki við Íslendingum í efnahagsþrengingunum að undanförnu og að Íslendingar verði því að leita sér nýrra vina. Hann mun þó hafa hrósað Færeyingum og Norðmönnum fyrir aðstoð þeirra við Íslendinga og sagt þá einu raunverulegu vini Íslendinga.
Samkvæmt upplýsingum norsku NTB fréttastofunnar trúðu viðstaddir vart eigin eyrum er forsetinn lét þessi orð falla. „Forsetinn setti fram harða gagnrýni á mörg þeirra landa sem áttu fulltrúa á fundinum, þeirra á meðal Danmörku og Svíþjóð,” segir í minnisblaði fulltrúa Norðmanna á fundinum. „Forsetinn setti fram móðgandi ásakanir á hendur Bretum.”
Haft er eftir Ólafi Ragnari að Norður-Atlantshafssvæðið hafi mikið vægi fyrir Norðurlöndin, Bandaríkin og Bretland en að þar sem ráðamenn í þeim ríkjum virðist nú líta framhjá þeirri staðreynd verði Íslendingar að leita sér nýrra vina.
Bloggað um fréttina
-
Viggó H. Viggósson Fjallkonan Medúsa -
Sveinn Sigurður Kjartansson Skiljanleg viðbrögð -
Jóhann Hallgrímsson Hvað er forsetinn að pæla -
Eyjólfur Sturlaugsson Sprengjuleiðin...er hún fær ? -
Axel Jóhann Hallgrímsson Uss, höfum hljótt, ekki styggja Breta meðan þeir sparka í ... -
Bergur Thorberg Að taka af skarið -
Ómar Ragnarsson Samræðustjórnmál forsetans. -
Elías Þórsson Skelfilegt útspil -
Helgi Kristófersson Verður ekki einhver að koma hreint fram? -
Gestur Guðjónsson Vonandi er forseti vor í samráði við ríkisstjórn sína -
Haraldur Haraldsson Mikið fjallað um ummæli forsetans okkar !!!! -
Baldur Gautur Baldursson Bravó herra Ólafur
Innlent »
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 12. nóvember 2008, Innlent Ekkert samasemmerki á milli umræðu um Rússalán og herstöðina
- Þriðjudagur, 1. janúar 2008, Innlent Fok og vatnsskemmdir í Hnífsdal
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Þriðjudagur, 10. febrúar 2009, Innlent Þjóðverjar fái engar bætur
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































