Fjölgar á Austurvelli

Lögreglumenn við Alþingishúsið.
Lögreglumenn við Alþingishúsið. mbl.is/Golli

Fjölgað hefur í röðum mótmælenda á Austurvelli undir miðnættið og er talið að þar séu nú hátt í þúsund manns. Nokkuð hefur verið um stympingar milli lögreglu og mótmælenda og hafa lögreglumenn beitt bæði piparúða og kylfum. Þá hefur eldur verið kveiktur að nýju framan við þinghúsið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert