Seldu 65 tonn í Grimsby

Þorskur
Þorskur mbl.is/Helgi Bjarnason

Sturla GK 12 seldi í dag 65 tonn af blönduðum afla á fiskmarkaði í Grimsby. Meðalverðið var 264 kr. á kíló. „Það eru einhver ár frá því íslenskt fiskiskip landaði þarna síðast,“ segir Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík, í samtali við vef LÍÚ.

Að sögn Eiríks nam heildarverðmæti afla dagsins 17 milljónum króna. Þorskur fór á 275 kr. kílóið að meðaltali og upp í 444 kr. kílóið af stórþorski. Heildarafli Sturlu var 105 tonn og verða 40 tonn seld á morgun. Uppistaðan í sölu dagsins var þorskur og ýsa en uppistaðan í sölu morgundagsins verður þorskur, langa og keila.

Eiríkur segir markaðinn á Humber-svæðinu hafa verið mikilvægan íslenskum útgerðum um áratugaskeið. „Við höfum ekki siglt með afla lengi en ástandið á mörkuðum er þannig að okkur ber hreinlega að nýta alla þá valkosti sem gefast í stöðunni. Þetta hefur verið einn okkar allra besti markaður og er það enn,“ segir Eiríkur. Sturla GK 12 leggur af stað heimleiðis í kvöld. Annað skip Þorbjarnar hf., Ágúst GK 95, er á leið til Grimsby og mun selja þar nk. mánudag, að því er segir á vef LÍÚ.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert